Skip to main content

Beiðni um nefjunarmælingu

Nefjunarmæling mælir hlutfall nefjunar í tali og metur þannig lokun mjúka góms upp við kokvegg. Mælingin er gerð á börnum eldri en fjögurra ára og er framkvæmd af talmeinafræðingi.

Talmeinafræðingar, hjúkrunarfræðingar og læknar geta sent tilvísun í nefjunarmælingu fyrir börn eldri en fjögura ára. Tekið er á móti rafrænum tilvísunum í gegn um Sögukerfið eða Signet. 

Í tilvísun þarf að koma fram eftirfarandi: 

Nafn og kennitala barns

Nafn, kennitala, tölvupóstur og símanúmer foreldra

Lýsing á vandanum

Niðurstöður málþroskaprófa ef við á

Aðrar greiningar ef við á

 

Tilvísun skal merkt Talmeinasviði Heyrnar- og talmeinastöðvar