Skip to main content

Heyrnartæki

heyrnartæki, verðlisti

Heyrnartæki og verð

Verð á heyrnartækjum

Verð á heyrnartækjum er mismunandi eftir framleiðendum og útfærslu tækjanna. Heyrnarskerðing einstaklings og daglegar aðstæður viðkomandi ræður því hvaða tækjum heyrnarfræðingarmæla með í hverju tilviki. Nokkrir verðflokkar eru til, allt eftir því hve fullkomin tækin eru. Algengt er að hlutur sjúklings í heyrnartækjum sé á bilinu 150-500 þúsund krónur fyrir par af heyrnartækjum.

Verð á einu pari af heyrnartækjum (með niðurgreiðslu) er á bilinu 150 þúsund - 500 þúsund krónur.

  • Greiðsluþátttaka ríkisins í heyrnartækjum er mismunandi og fer m.a. aldri eftir heyrnarskerðingu.
  • Börn yngir en 18 ára fá heyrnartæki gjaldfrjálst.
  • Eldri en 18 ára með heyrnarskerðingu að 30-70dB fá fasta upphæð í niðurgreiðslu, nú 60.000 krónur á hvert tæki á 4 ára fresti.
  • Fólk með verri heyrn en 70dB á betra eyra fá 80% af verði heyrnartækja niðurgreitt.
  • Ígræðsluþegar fá yfirleitt 90% greiðsluþátttöku frá sjúkratryggingum.

Athugið að flest stéttarfélög veita styrki til heyrnartækjakaupa.  Mælum með að þú athugir þetta vel hjá þínu stéttarfélagi.

Sjá nánari upplýsingar í reglugerð HÉR

Heyrnarfræðingar okkar og afgreiðslufólk veita einnig nánari upplýsingar.