Höfðingleg gjöf Öryrkjabandalags Íslands til HTÍ
Á degi heyrnar, 3.mars, afhenti formaður Öryrkjabandalags Íslands, Alma Ýr Ingólfsdóttir, Heyrnar- og talmeinastöð frábæra og viðeigandi gjöf í tilefni dagsins. Gjöfin er heyrnar-skimunarmælir sem ætlaður er til skimunar á heyrn ungra skólabarna. Þema dags heyrnar 2026 er einmitt ,,Heyrnarvernd fyrir öll börn" og aðalskilaboð Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar eru að heilbrigðisyfirvöld allra landa skuli innleiða reglulega skimun á heyrn barna við upphaf skólagöngu. HTÍ hefur lengi barist fyrir endurupptöku á skimun heyrnar hjá skólabörnum og hélt því baráttumáli einmitt á lofti þetta árið. Því er gjöfin kærkomin og góð viðbót við tækjakost HTÍ.
Kristján Sverrisson, forstjóri HTÍ tók við gjöfinni og á myndinni með þeim Kristjáni og Ölmu er einnig Telma Sigtryggsdóttir, formaður Heilbrigðishóps ÖBÍ.
Við þökkum ÖBÍ kærlega fyrir höfðinglega gjöf !