Skip to main content

Heyrnar- og talmeinastöð Íslands óskar eftir að ráða 2 talmeinafræðinga. 50-100% stöður í boði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið talmeinafræðinga HTÍ er m.a.:

  • Málþroskamat, greining og meðferð

  • Talþjálfun barna og fullorðinna

  • Gerð þjálfunaráætlana og samstarf við leikskóla og grunnskóla

  • Þjálfun kuðungsígræðsluþega

  • Þjálfun og kennsla nema í talmeinafræðum

 

Hæfniskröfur

Starfsleyfi frá Landlækni til að starfa sem talmeinafræðingur.

Mikil áhersla er lögð á lipurð í mannlegum samskiptum og sjálfstæðum vinnubrögðum.Staðreynd starfsreynsla í faginu.

Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum[AS1] .Kostur ef viðkomandi er með kunnáttu í íslensku táknmáli.


 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.

Talmeinafræðingar Heyrnar- og talmeinastöðvar leggja áherslu á foreldramiðaða nálgun í sinni vinnu, auk fræðslu og teymisvinnu í skólum barnanna. Unnið er í þverfaglegum teymum innan stöðvarinnar en einnig í samvinnu við Barnaspítala og LSH. Í fyrirhugaðri sameinginu HTÍ við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins má einnig búast við viðbótarverkefnum og nýjum áskorunum.

Vinnutími: 8-16 mán-fim og 8-13 á föstudögum. Möguleiki á sveigjanleika.

Laun: skv stofnanasamningum ríkis og Visku.

Umsóknarfrestur er til og með 1.mars 2026. Umsóknir skulu berast bréflega eða sem viðhengi með tölvupósti til Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands, Hraunbæ 115, 110 Reykjavík, eða á tölvupóstfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. merktar Starfsumsókn-talmeinafræðingur.

Nánari upplýsingar veitir Anna Ósk Sigurðardóttir, sviðsstjóri í síma 581-3855 eða á netfangi This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Anna Ósk Sigurðardóttir

Sviðsstjóri talmeinasviðs

Tölvupóstur: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Sími: 581-3855

 

Sækja um starfið hér

Einnig er hægt að sjá upplýsingar hér https://island.is/starfatorg/x-45492