Fyrir börn yngri en 18 ára eru heyrnartæki greidd að fullu.
Fyrir þá sem eru 18 ára og eldri og hafa tónmeðalgildi á betra eyranu >30 dB<70 dB viðtíðnina 0,5, 1,0, 2,0 og 4,0 kHz, greiðast 30.800 kr. fyrir hvert heyrnartæki á fjögurra ára fresti, þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur kaupverði tækis.
Fyrir þá sem eru 18 ára og eldri og hafa tónmeðalgildi á betra eyranu >70 dB við tíðnina0,5, 1,0, 2,0 og 4,0 kHz, er greitt 80% af verði heyrnartækis á fjögurra ára fresti, þó ekki lægri upphæð en 30.800 kr. nema kaupverð tækis sé lægra.
Heyrnar- og talmeinastöð aðstoðar sjúkratryggða einstaklinga við að útvega nauðsynleghjálpartæki önnur en heyrnartæki. Fyrir þá sem hafa tónmeðalgildi á betra eyranu > en 50 dB er greitt 80% af verði hjálpartækis á fjögurra ára fresti.
Vefur um greiðsluþátttöku ríkisins í heyrnar- og hjálpartækjumVefur um greiðsluþátttöku ríkisins í samskiptatækjum