Vörur

Heyrnartæki

Heyrnartæki eru til í mismunandi stærðum, útliti og styrkleika. En það er innihald heyrnartækjanna en ekki útlit sem skiptir mestu máli. Flest heyrnartæki eru stafræn en einnig er hægt að fá  línuleg (analog) tæki. Stafrænu tækin eru stillt í tölvu eftir heyrn hvers og eins. Mestu máli skiptir að finna rétt heyrnartæki fyrir hvern einstakling.

Sumir vilja sjálfir geta stýrt hljóðstyrk tækisins, það er hversu hátt þeir heyra, á meðan öðrum hentar betur að vera með tæki sem lagar sig sjálfkrafa að hljóðum í umhverfinu hverju sinni. Það hvers konar heyrnartæki hentar best fer því bæði eftir óskum og heyrn hvers og eins en auk þess getur lögun eyrans skipt máli í því sambandi.

Heyrnartæki geta aldrei komið í staðinn fyrir þá heyrn sem við höfðum áður en þau geta í flestum tilfellum létt okkur lífið.
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is