Um htí

796/2006


REGLUGERÐ
um þátttöku ríkisins í kostnaði við samskiptahjálpartæki fyrir þá
sem eru alvarlega heyrnarskertir og daufblindir.


 

1. gr.
Styrkur til alvarlegra heyrnarskertra og daufblindra.

Heyrnar- og talmeinastöð veitir styrk til kaupa á samskiptahjálpartækjum sbr. fylgiskjal I fyrir alvarlega heyrnarskerta og daufblinda sem hér segir:

  1. Fyrir þá sem eru eldri en átta ára og hafa tónmeðalgildi > 70 dB og/eða talgreiningu undir 30% greiðast kr. 30.000. Þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur kaupverði tækis.
  2. Fyrir þá sem eru eldri en átta ára og hafa verið greindir daufblindir greiðast kr. 45.000. Þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur kaupverði tækis.


Einstaklingur getur mest notið greiðsluþátttöku fyrir hvert samskiptahjálpartæki skv. 1. og 2. tölul. 1. mgr. á tveggja ára fresti.


2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 10. mgr., sbr. 4. mgr., 37. gr. a. laga nr. 97/1990 um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 887/2003 um þátttöku ríkisins í kostnaði við hjálpartæki á árinu 2003 fyrir þá sem eru alvarlega heyrnarskertir og daufblindir.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 21. september 2006.


 

Siv Friðleifsdóttir.
Ragnheiður Haraldsdóttir.




Fylgiskjal I.

Listi yfir samskiptahjálpartæki.


Tölva
Myndsími
Lófatölva eða sambærilegt þráðlaust samskiptatæki
Ritþjálfi
GSM sími
Fax tæki
Skynjarabúnaður fyrir daufblinda
Vefmyndavél ofan á tölvu

Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is