Um htí

Heyrnar- og talmeinastöð Íslands tók formlega til starfa í byrjun árs 1979 samkvæmt lögum nr. 35 frá 1978.  Upphaf stofnunarinnar má rekja til Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur en byrjað var að heyrnarmæla þar 1962.  Zontasystur höfðu frumkvæði af því að kaupa inn tæki og búnað sem til þurfti við heyrnarmælingar og kostuðu einn starfsmann til náms í heyrnarmælingum erlendis. 

Árið 1966 var formlega stofnuð heyrnardeild við Heilsuverndarstöð Reykjavíkur sem starfrækt var fram til ársins 1978 er Heyrnar- og talmeinastöðin tók til starfa.  Áður hafði Félagið Heyrnarhjálp, sem stofnað var árið 1937, flutt inn heyrnartæki og selt og þjónustað þau.  Félagið naut að hluta styrks frá ríkinu og fór meðal annars reglulega ferðir út á land til að aðstoða heyrnarskerta.  Allt fram til ársins 1994 sá félagið um innflutning á heyrnartækjum og keypti Heyrnar- og talmeinastöðin tækin af félaginu og fékk það þannig fé til rekstrar síns.


Lögum um Heyrnar- og talmeinastöðina var breytt 1997 og aftur 2001 og þau felld inn í lög um heilbrigðisþjónustu nr. 97/1990. 


Árlega eru skráðar um 12.000 heimsóknir á stöðina flestar vegna heyrnarmælinga, læknisskoðana og hvers konar aðstoðar við heyrnartæki.  Þá er gert við um 3000 heyrnartæki árlega.  Fræðsla og rannsóknir á starfssviði stofnunarinnar munu fá aukið vægi á næstu árum.  Við stöðina starfa 20 starfsmenn; læknar, heyrnarfræðingar, talmeinafræðingar, tannsmiðir ásamt riturum og öðrum sem koma að rekstri hennar.

Fylgst er með nýjungum í heyrnartækjum og öðrum hjálpartækjum bæði fyrir heyrnarskerta og þeirra sem eru með frávik í tali.

Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is