Um htí

Nr. 233                                                                                   


GJALDSKRÁ

Heyrnar- og talmeinastöðvar fyrir þjónustu
 við þá sem eru með heyrnar- og talmein


 

1. gr. Viðgerðarþjónusta.


Sjúkratryggður einstaklingur skal greiða gjald fyrir viðgerð á hjálpartæki eftir að ábyrgðartíma

lýkur sem hér segir:

a. Fyrir hverjar byrjaðar 15 mínútur sem tekur að gera við tækið greiðast kr. 500 með

virðisaukaskatti.

b. Fyrir íhluti (varahluti) greiðist kostnaðarverð.


2. gr. Sérfræðilæknisþjónusta.


Sjúkratryggður einstaklingur skal greiða gjald fyrir sérfræðilæknisþjónustu og rannsóknir

samkvæmt reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.


3. gr. Greining og meðferð talmeina.


Sjúkratryggður einstaklingur skal greiða gjald fyrir greiningu og meðferð talmeina, komu

vegna endurmats hjá talmeinafræðingi og aðrar rannsóknir sem hér segir:

1. Sjúkratryggðir almennt:

a. Fyrir greiningu 1.540 kr.

b. Einstaklingsmeðferð 1.540 kr.

c. Meðferð tveggja sjúklinga samtímis, 1.100 kr. fyrir hvorn sjúkling.

d. Hópmeðferð 733 kr. fyrir hvern sjúling.


2. Þeir sem eru 67 ára og eldri, einstaklingar metnir til 75% læknisfræðilegrar örorku, þeir

sem fá endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins, börn með umönnunarkort frá

Tryggingastofnun ríkisins, önnur börn yngri en 18 ára og sjúkratryggðir almennt með þjálfunarkort

frá Tryggingastofnun ríkisins:


a. Fyrir greiningu 770 kr.

b. Einstaklingsmeðferð 770 kr.

c. Meðferð tveggja sjúklinga samtímis 550 kr. fyrir hvorn sjúkling.

d. Hópmeðferð 367 kr. fyrir hvern sjúkling.

3. Öðrum, sbr. 2. tölul. en sjúkratryggðum almennt, með þjálfunarkort skal veitt þjónustan

að kostnaðarlausu.


4. gr. Heyrnarrannsóknir á vinnustöðum.

Fyrir heyrnarrannsókn á vinnustað skal greiða kr. 2.200 fyrir hvern einstakling sem

mældur er af Heyrnar- og talmeinastöð.


5. gr. Gildistaka.


Gjaldskrá þessi, sem sett er með stoð í 9. mgr. 37. gr. a laga nr. 97/1990 um heilbrigðisþjónustu,

með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr.

161/1986 fyrir þjónustu á vegum Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands, með síðari breytingum.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 1. apríl 2003

 

Jón Kristjánsson.

Davíð Á. Gunnarsson.

Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is