Heyrnarskert börn greind við fæðingu
Öll börn sem fæðast á Akureyri verða heyrnarmæld frá og með næstu mánaðamótum. Þau bætast í hóp barna sem fæðast á Landspítalanum sem undanfarin tvö ár hafa verið heyrnarmæld nýfædd. Guðrún Gísladóttir framkv.stjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands segir mælinguna gera það að verkum að heyrnarskerðing komi miklu fyrr í ljós en áður. „Áður en við byrjuðum að mæla var meðalgreingaraldurinn þrjú og hálft ár. Þá höfðu börnin ekkert heyrt í þann tíma.“
Í fyrra voru 94 prósent barna sem fæddust á Landspítalanum heyrnarmæld en Guðrún vonar að það takist að mæla 95 prósent allra barna sem fæðast á Íslandi innan fárra ára.
Birt í Fréttablaðinu 11. ágúst 2009