Þóra Másdóttir varði doktorsritgerð í talmeinafræði við Newcastle University í Bretlandi, 12. júní síðastliðinn. Ritgerðin nefnist „Phonological development and disorders in Icelandic-speaking children“. Markmið rannsóknarinnar var tvíþætt, annars vegar að athuga þróun málhljóða og hljóðkerfis hjá tveggja og þriggja ára íslenskum börnum og hins vegar að kanna tal fjögurra og fimm ára barna sem voru með greinanlega röskun á framburðarþroska miðað við jafnaldra. Rannsóknin leiddi m.a. í ljós að framburður eldri barna með frávik svipar til framburðartilbrigða yngri barna með eðlilegan málþroska. Þó virtist frávikshópurinn vera með ákveðin framburðareinkenni sem ekki voru til staðar hjá yngri hópnum, auk þess sem sértæk, einstaklingsbundin frávik voru meira áberandi hjá börnunum sem skipuðu frávikshópinn. Niðurstöður rannsóknarinnar segja einnig til um hvaða hljóðferli eru einstök fyrir íslenska tungu og skipta máli þegar verið er að kanna framburð barna með frávik. Rannsóknin verður m.a. lögð til grundvallar framburðarprófi fyrir börn.
Leiðbeinandi Þóru var Stephanie F. Stokes, prófessor við Newcastle University. Rannsóknin var styrkt af Rannís.
Þóra er fædd 12. júní 1961. Hún útskrifaðist frá Háskóla Íslands árið 1986 með B.A. próf í íslensku og almennum málvísindum. Hún útskrifaðist með M.A. gráðu í talmeinafræði frá Indiana University í Bandaríkjunum, árið 1990.