Um htí

23.12.2008 The Icelandic Government's Information regarding financial circumstances in Iceland

The Icelandic Government's Information Center regarding the current financial circumstances in Iceland


http://www.iceland.org/info


23.12.2008 Gagnlegar upplýsingar frá stjórnvöldum vegna efnahagsvandans

Á vefnum http://www.island.is/efnahagsvandinn er nú að finna á einum stað traustar og yfirgripsmiklar upplýsingar um efnahagsástandið á Íslandi, til hvaða ráðstafana opinberir aðilar hafa gripið og hvert er hægt að leita eftir úrræðum. Á vefnum er einnig fréttaveita þar sem finna má fréttir sem tengjast efnahagsástandinu. Að auki er fyrirspurnum svarað í síma 800 1190 og í tölvupósti (midstod@island.is).


28.01.2009 Þóra Másdóttir, doktor í talmeinafræði, hefur nú bæst í hóp sérfræðinga okkar
Þóra Másdóttir varði doktorsritgerð í talmeinafræði við Newcastle University í Bretlandi, 12. júní síðastliðinn. Ritgerðin nefnist „Phonological development and disorders in Icelandic-speaking children“.
meira ->
18.08.2009 Nýburamælingar á Akureyri


Heyrnarskert börn greind við fæðingu

Öll börn sem fæðast á Akureyri verða heyrnarmæld frá og með næstu mánaðamótum. Þau bætast í hóp barna sem fæðast á Landspítalanum sem undanfarin tvö ár hafa verið heyrnarmæld nýfædd.


meira ->
02.03.2010 Norræn ráðstefna um kuðungsígræðslu
Norræn ráðstefna um kuðungsígræðslu verður haldin dagana 4. til. 5. október í Gautaborg. 
Nánari upplýsingar á slóðinni:  www.barnplantorna.se



meira ->
09.09.2010 Kynning á hjálpartækjum 17. sept. n.k.

 

Herdís Guðbjartsdóttir, heyrnartæknir verður með kynningu á hjálpartækjum hjá Félagi heyrnarlausra föstudaginn 17. september kl. 13:30 til 15.


02.11.2010 Kaffispjall hjá Heyrnarhjálp


Heyrnarhjálp, í samvinnu við Heyrnar- og talmeinastöðina, býður til kaffispjalls  þriðjudaginn 23. nóvember kl. 13:30 í húsnæði Heyrnarhjálpar að Langholtsvegi 111.

Guðrún Skúladóttir, heyrnarfræðingur, hefur umsjón með spjallinu.  Farið verður yfir umhirðu heyrnartækja, hvað þarf að hreinsa og skipta um.

Ef þú notar heyrnartæki eða átt vandamenn sem það gera hvetjum við þig til að koma í kaffispjall til okkar. Við lofum kaffi og fróðleik og þú kemur með góða skapið með þér.

Heyrnar- og  talmeinastöðin og Félagið Heyrnarhjálp

Tónmöskvi og rittúlkur á staðnum


05.01.2011 Hjúkrunarfræðingar í heilsugæslu!

HEYRN, HEYRNARMÆLINGAR OG FRÁVIK Í MÁLÞROSKA


Heyrnar- og talmeinastöðin býður hjúkrunarfræðingum heilsugæslustöðva upp á námskeið um heyrn, heyrnarmælingar og frávik í málþroska.


Námskeiðið er ætlað hjúkrunarfræðingum sem sjá um heyrnarmælingar á heilsugæslustöðvum og í skólum. Farið verður yfir hvernig eðlileg heyrn er, hvað heyrnarmælingin sýnir okkur og hvenær þarf að vísa áfram til frekari rannsókna.

  • Boðið er upp á kennslu í mótatöku fyrir hlustarstykki.
  • Rædd verða helstu frávik í málþroska barna.

  • Námskeiðið er í formi fyrirlestra og sýnikennslu.

Námskeiðið er í boði á eftirfarandi dögum:


21. janúar, 18. febrúar og 17. mars 2011


Skráning er í síma 581 3855 frá kl. 8:00 – 16:00 alla virka daga og á netfanginu www.hti@hti.is



Verið velkomin,

Starfsfólk Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands



18.01.2011 25. janúar kaffispjall hjá Heyrnarhjálp
Við höldum áfram með kaffispjall hjá Heyrnarhjálp. Næst hittumst við 25. janúar kl. 13:30 á Langholtsvegi 111.
meira ->
21.01.2011 Hjúkr.fr. í heilsugæslu, aukanámskeið

Vegna afar góðra undirtekta á námskeiðið um HEYRN, HEYRNARMÆLINGAR OG FRÁVIK Í MÁLÞROSKA fyrir hjúkrunarfræðinga heilsugæslustöðva höfum við ákveðið að bæta við einu námskeiði. Námskeiðið verður haldið 23. mars.



Skráning er í síma 581 3855 frá kl. 8:00 – 16:00 alla virka daga og á netfanginu www.hti@hti.is



Verið velkomin,

Starfsfólk Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands


08.02.2011 Námskeið fyrir kennara heyrnarskertra barna

Námskeið fyrir kennara sem kenna heyrnarskertum börnum og aðra þá sem vilja fræðast um heyrnarskerðingu og afleiðingar hennar.


Námskeiðið verður haldið dagana 11. og 28. febrúar kl. 8:15 -12:30.


Farið verður í hvað heyrnarskerðing er, þarfir heyrnarskertra nemenda, afleiðingar hávaða og algengustu heyrnartæki og virkni þeirra. Einnig verður farið yfir FM búnað sem margir heyrnarskertir nemendur nota.


Fyrirlesarar eru heyrnarfræðingarnir Bryndís Guðmundsdóttir og Kristbjörg Pálsdóttir.


Skráning fer fram með tölvupósti á hti@hti.is eða í síma 581 3855. Skráningu lýkur 9. febrúar fyrir fyrra námskeiðið og 24. febrúar fyrir það síðara.



Með kveðju,



Starfsfólk Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar


11.02.2011 Kaffispjall 22. febrúar hjá Heyrnarhjálp

Guðrún Skúladóttir fjallar um kuðungsígræðslu. Hvað er kuðungsígræðsla?  Hverjir geta farið í ígræðslu og hvaða árangri getur hún skilað?


Kaffispjallið er vettvangur fyrir heyrnarskerta og aðstandendur þeirra til að fræðast um ýmis málefni er varða heyrnarskerta. Ert þú með góða hugmynd eða finnst þér vanta fræðslu?

Komdu í kaffi og finnum út hvort við getum ekki gert eitthvað saman!


Heyrnarhjálp


15.02.2011 Auglýsing um styrki úr Liljusjóði

Styrkir til rannsókna vegna eyrnasuðs (tinnitus)



Liljusjóðurinn


Rannsóknar- og styrktarsjóður Lilju Guðrúnar Hannesdóttur


auglýsir til umsóknar styrki til rannsókna vegna eyrnasuðs (tinnitus).


Tilgangur sjóðsins er að styrkja rannsóknir á eyrnasuði. Tilgangur rannsókna skal vera sá að afla hverrar vitneskju sem hægt er til að komast að ástæðum þess að fólk geti þjáðst af eyrnasuði (tinnitus).


Umsóknarfrestur er til 18. apríl 2011.


Úthlutað verður úr sjóðnum á afmælisdegi Lilju Guðrúnar 24. maí 2010.


Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu sjóðsins http://www.liljusjodurinn.is eða hjá undirrituðum.


Hannes Petersen dósent; hpet@landspitali.is


Ingibjörg Hinriksdóttir; ingibjorg@hti.is



20.04.2011 HTÍ og HÍ undirrita samning um meistaranám í talmeinafræði

Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands og Guðrún Gísladóttir, framkvæmdastjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands, hafa undirritað samning til að efla farsælt samstarf beggja, sem felst í að nýta sem best sérþekkingu, kunnáttu, efnivið og aðstöðu sem aðilarnir búa yfir.











meira ->
05.05.2011 Lubbi finnur málbein hlýtur viðurkenningu

Föstudaginn 29. apríl fékk Lubbi finnur málbein viðurkenningu Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræða, sem 'Besta íslenska fræðibókin fyrir börn árið 2010' en bókin um Lubba er hugsuð til málörvunar og hljóðanáms fyrir börn á aldrinum tveggja til sjö ára.

Höfundar bókarinnar, Þóra Másdóttir og Eyrún Ísfold Gísladóttir, eru báðar talmeinafræðingar sem hafa áralanga reynslu af talþjálfun barna en Þóra starfar einmitt um þessar mundir hér hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.


Bókin kom út hjá Máli og menningu/Forlaginu haustið 2009.


09.06.2011 Stamar þú?

Stamar þú?

Stam – íhlutunarrannsókn á vegum Háskóla Íslands, Heyrnar- og talmeinastöðvar og Talþjálfunar Reykjavíkur.



meira ->
22.07.2011 Innköllun heyrnarskertra barna
Árleg innköllun heyrnarskertra barna á grunnskólaaldri verður í september og fyrstu vikuna í október. Að þessu sinni verða börn sem fædd eru árin 2001, 2003, 2004 og 2005 kölluð inn. Samtals eru þetta 72 börn.  Við munum breyta aðeins til þetta árið og gerum ráð fyrir því að allavegana hluti barnanna komi tvisvar. Þó er gert ráð fyrir því að börn sem búa á landsbyggðinni fái alla þjónustu á einum degi.

Að venju verða börnin heyrnarmæld og læknir skoðar þau. Heyrnarfræðingur fer yfir heyrnartæki og önnur hjálpartæki ásamt skólamálum.  Gert er ráð fyrir að allavegana hluti barnanna hitti talmeinafræðing. Heyrnarskert börn sem þurfa talþjálfun geta fengið hana á Heyrnar- og talmeinastöðinni sé þess óskað.

Foreldrum heyrnarskertra barna sem ekki eru á innköllunarlista í haust er bent á að panta tíma eftir þörfum.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Halla Lýðsdóttir, læknaritari
21.09.2011 Lifað með heyrnarskerðingu - fræðsla

Heyrnarfræðingar Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar bjóða til kynningar og spjalls um heyrn, heyrnarskerðingu, heyrnartæki og önnur hjálpartæki fyrir heyrnarskerta. Námskeiðin eru haldin annan hvern þriðjudag kl. 13.30 á þriðju hæð í Valhöll, Háaleitisbraut 1, og lýkur um kl. 15:00.



Reynt verður að svara eftirfarandi spurningum:

· Hvernig heyrum við?

· Hvað gerist þegar við missum heyrnina?

· Hvaða áhrif hefur heyrnartapið á daglegt líf?

· Hvað geta ættingar og vinir gert?

· Hvernig geta heyrnartæki hjálpað?


Fræðslan er fyrir alla sem eru farnir að tapa heyrn eða eiga aðstandanda/vin sem er heyrnarskertur.


Skráning fer fram í afgreiðslu Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar, í síma 581 3855 eða á netfanginu www.hti@hti.is



06.10.2011 Heyrn og málþroski leikskólabarna

Heyrnar- og talmeinastöðin býður til fyrirlestrar um heyrn og málþroska leikskólabarna
fimmtudaginn 27. október í Valhöll, Háaleitisbraut 1, frá kl. 8:30 – 12.00.


Dagskrá

Nýburamælingar:
-Tilgangur
-Mæliaðferðir
-Heyrnarskerðing greind – Hvað svo?
-Nýburamælingar á Íslandi


Miðeyrnarvandamál:
-Einkenni
-Greining
-Meðferð


Málþroski:
-Þróun máls og tals
-Helstu frávik í máli/tali
-Úrræði


Fyrirlesarar eru Ingibjörg Hinriksdóttir, yfirlæknir og Hrafnhildur Halldórsdóttir, talmeinafræðingur


Skráning fer fram í afgreiðslu Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar, í síma 581 3855 eða á netfanginu www.hti@hti.is



14.12.2011 Nýtt - Hljóðabelgur-orðalistar

Heyrnar-og talmeinastöð gefur út nýtt efni.



Talmeinafræðingarnir Þóra Másdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir hafa tekið saman orðalista sem inniheldur orð sem raðað er eftir málhljóðum. Um er að ræða 130 blaðsíðna hefti sem gagnast til dæmis í vinnu með börnum í leik- og grunnskóla hvort heldur sem unnið er með framburð, málþroska og/eða orðaforða. Orðalistarnir nýtast einnig í vinnu með fullorðnum einstaklingum sem þurfa að æfa framburð hljóða og orða.



Hljóðabelgur skiptist í sjö kafla; Stök málhljóð í framstöðu, innstöðu og bakstöðu. Samhljóðaklasa, bæði framstöðu-og innstöðuklasa. Lágmarkspör, sérhljóð, orð röðuð eftir orðalengd og að lokum nokkrar hljóðaþrautir.



Heimilt er að ljósrita listana.



Verðið er 4.500 krónur og hægt er að nálgast eintak á HTÍ



26.09.2008 Heyrn, Kuðungsígræðsla
Grein sem birtist í blaði Heyrnarhjálpar í nóvember 2007 um heyrn og kuðungsígræðslu.
meira ->
26.09.2008 Kuðungsígræðsla - Norræn ráðstefna 2001
Staða mála á Norðurlöndum haustið 2001 (samantekt á efni þverfaglegrar norrænnar ráðstefnu í Oslo í nóvember 2001) .

Dagana 21.-23. Nóvember 2001 var haldin þverfagleg samnorræn ráðstefna um kuðungsígræðslu (cochlear implant, stytt í CI). Yfirskriftin var "Börn og ungmenni með CI, þroskaferill og lífsgæði".
meira ->
26.09.2008 Heyrn, heilsa og hávaði
 
Evrópska vinnuverndar vikan er í ár tileinkuð hávaða á vinnustöðum.
Hávaði er hljóð sem einstaklingur óskar ekki eftir að heyra, þannig geta ljúfustu hljóð eins og falleg tónlist orðið hávaði ef þau verða of sterk. Hljóð fyrir einum getur verið hávaði fyrir öðrum.

meira ->
26.09.2008 Heyrir barnið þitt?

Heyrn og málskilningur. Börn bregðast nokkuð misjafnlega við hljóðum, en í grófum dráttum mætti líta á eftirfarandi sem eðlilegar væntingar:
meira ->
29.09.2008 Er heyrn barna í hættu?
 
Lengi hefur verið þekkt að hávaði yfir ákveðnum mörkum skaðar mannlega heyrn. Víða á hávaðasömum vinnustöðum hafa verið gerðar fyrirbyggjandi aðgerðir til að vernda heyrn starfsfólks.

meira ->
29.09.2008 Tölfræði

Áreiðanlegar tölur um heyrnarskerta Íslendinga liggja ekki fyrir en sé miðað við erlendar rannsóknir má gera ráð fyrir því að allt að 10% þjóðarinnar sé heyrnarskertur og af þeim um 5% það mikið heyrnarskertur að þeir hafi gagn af því að nota heyrnartæki. Með hækkandi lífaldri fjölgar í hópi heyrnarskertra þar sem heyrnarskerðingu flestra má rekja til öldrunar.

meira ->
29.09.2008 Forvarnir
Heyrnarskaði vegna hávaða er algengari en fólk gerir sér grein fyrir. Eldri karlmenn eru margir með skerta heyrn af völdum hávaða, enda var vitneskja um skaðleg áhrif hávaða á heyrn minni fyrir nokkrum áratugum. Nú vitum við betur en samt vex hávaðinn í umhverfi okkar með hverju ári. Jafnvel börn eru í mun meiri hávaða daglega, til dæmis leikskólum, en hollt getur talist.

meira ->
29.09.2008 Börn sem stama


Inngangur:

Mörg okkar hafa á einhvern hátt tengst fólki sem stamar, annaðhvort af afspurn eða þá að við þekkjum einhvern. Allir eru sammála um að stam er erfið taltruflun sem enginn vill vera með. Það er því engin furða þótt margir foreldrar hrökkvi illilega við ef þeir verða varir við að barnið þeirra tekur upp á því að stama. Eðlilega vilja foreldrar geta leitað sér hjálpar svo fljótt sem auðið er ef vera skyldi að það kæmi í veg fyrir langvarandi stam.


 


meira ->
23.12.2008 The Icelandic Government's Information regarding financial circumstances in Iceland

The Icelandic Government's Information Center regarding the current financial circumstances in Iceland


http://www.iceland.org/info


23.12.2008 Gagnlegar upplýsingar frá stjórnvöldum vegna efnahagsvandans

Á vefnum http://www.island.is/efnahagsvandinn er nú að finna á einum stað traustar og yfirgripsmiklar upplýsingar um efnahagsástandið á Íslandi, til hvaða ráðstafana opinberir aðilar hafa gripið og hvert er hægt að leita eftir úrræðum. Á vefnum er einnig fréttaveita þar sem finna má fréttir sem tengjast efnahagsástandinu. Að auki er fyrirspurnum svarað í síma 800 1190 og í tölvupósti (midstod@island.is).


Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is