Biluð heyrnartæki og önnur hjálpartæki þarf að koma með eða senda til Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar. Megin reglan er sú að tæki sem koma fyrir kl. 12:00 eru tilbúin daginn eftir kl. 14:00. Tæki sem koma eftir kl. 12:00 eru tilbúin daginn þar á eftir kl. 14:00. Þetta á þó ekki við ef tæknimaður er í fríi eða veikur. Í einstaka tilfellum getur viðgerðin tekið lengri tíma og á það sérstaklega við ef um er að ræða inn-í eyra-tæki sem hafa brotnað og smíða þarf nýja skel. Það tekur lágmark viku og getur tekið lengri tíma ef nauðsynlegt reynist að senda tæki úr landi til viðgerðar.
Ef tækið virkar enn ekki er það að öllum líkindum bilað. Komdu með tækið eða sendu það til okkar á Heyrnar- og talmeinastöðina og við aðstoðum þig með viðgerð.
Ef hlustarstykki særir eða passar ekki nægilega vel er hægt að panta tíma hjá hlustarstykkjasmiðum sem oft geta lagað stykkið og er það gert meðan eigandinn bíður. Í einhverjum tilfellum þarf að taka nýtt mót af eyranu og smíða nýtt hlustarstykki og tekur það þá um viku til 10 daga. Sama gildir um skeljar fyrir inn-í eyra-tæki, þær er oft hægt að laga ef þær sitja ekki nægilega vel.