Heyrnar- og talmeinastöð veitir styrk til kaupa á samskiptahjálpartækjum fyrir alvarlega heyrnarskerta og daufblinda sem hér segir:
1. Fyrir þá sem eru eldri en átta ára og hafa tónmeðalgildi > 70 dB og / eða talgreiningu undir 30% greiðast kr. 30.000. Þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur kaupverði tækis.
2. Fyrir þá sem eru eldri en átta ára og hafa verið greindir daufblindir greiðast kr. 45.000. Þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur kaupverði tækis.
Einstaklingur getur mest notið greiðsluþátttöku fyrir hvert samskiptahjálpartæki skv. 1. og 2. tölul. 1. mgr. á tveggja ára fresti.
Samskiptatæki eru eftirfarandi tæki:
Tölvuforrit fyrir textasíma, tölva, myndsími, lófatölva, ritþjálfi, GSm sími, GSM tónmöskvi, faxtæki, conversor, skynjarabúnaður, vefmyndavél ofan á tölvu.
Styrkurinn verður aðeins greiddur út gegn framvísun á kvittun fyrir kaupum á einhverju af ofangreindum tækjum. Umsóknareyðublað má fá hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands. Félagi heyrnarlausra, Blindrafélagi Íslands og Heyrnarhjálp.