Þjónusta

Opið frá kl. 8:00 - 16:00 alla virka daga.

Skiptiborðið er opið frá kl. 9:00 - 16:00 alla virka daga.

Tímabókanir eru alla virka daga milli kl. 09.00 - 16.00

Nánari upplýsingar eru í síma 581 3855.

Neyðartímar eru alla virka morgna frá kl. 8:15 - 8:45.  Þessir tímar eru fyrst og fremst ætlaðir sem bráðaþjónusta t.d. aðstoð við að stilla heyrnartæki. Tíma hjá lækni þarf ávallt að bóka fyrirfram og er læknisþjónusta stöðvarinnar ætluð heyrnartækjanotendum.


Aðstoðartíma vegna heyrnartækja eða hlustarstykkja er hægt að bóka alla virka daga og er í flestum tilfellum aðeins nokkurra daga bið.  Það sama á við  þegar verið er að sækja ný heyrnartæki.


Þegar pantaður er tími er mikilvægt að láta vita ef þörf er á táknmálstúlki.  Allir þeir sem tala táknmál þurfa túlk með sér þegar komið er í heyrnarmælingu eða til læknis.  Vinsamlegast látið vita í afgreiðslunni svo hægt sé að sjá um að panta túlk.  Kostnaður við túlkaþjónustu er greiddur af Heyrnar- og talmeinastöðinni og á það jafnt við um táknmálstúlkun og túlkun á öðrum tungumálum.


Ráðgjöf hjálpartækja annarra en heyrnartækja.  Hægt er að panta tíma í hjálpartækjaráðgjöf þar sem farið er yfir hjálpartæki eins og t.d. dyrabjöllubúnað og tónmöskva.

 

Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is