Mörg okkar hafa á einhvern hátt tengst fólki sem stamar, annaðhvort af afspurn eða þá að við þekkjum einhvern. Allir eru sammála um að stam er erfið taltruflun sem enginn vill vera með. Það er því engin furða þótt margir foreldrar hrökkvi illilega við ef þeir verða varir við að barnið þeirra tekur upp á því að stama. Eðlilega vilja foreldrar geta leitað sér hjálpar svo fljótt sem auðið er ef vera skyldi að það kæmi í veg fyrir langvarandi stam.