Tal

Manninum er eiginlegt að geta tjáð sig.  Tjáningin, hvort sem hún felst í því að mæla af munni fram eða nota táknmál af einhverju tagi, er lykillinn að því að geta átt í samskiptum við annað fólk.  Máltakan er samspil margra þátta.  Börn hafa meðfæddan hæfileika til að veita röddum og andlitum í kringum sig athygli og þau er stillt inn á að nema það eða þau mál sem þau heyra í nánasta umhverfi sínu.  Félagslegi þáttur málanámsins er ómetanlegur og sannast hið fornkveðna að því læra börn málið að það er fyrir þeim haft.


Málþroski barna er vinsælt viðfangsefni foreldra, leikskólakennara, þroskaþjálfa, talmeinafræðinga og annarra sem fylgjast náið með hvernig barnið tileinkar sér móðurmálið.  Með því að velja slóðirnar sem birtast hér á síðunni má skoða ýmsa þætti málþroskans, helstu tal- og málmein og atriði er varða málörvun barna svo eitthvað sé nefnt.

Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is