Heyrn

Þrífa þarf hlustarstykki reglulega til að hreinsa burtu raka og eyrnarmerg.

Hlustarstykki hreinsað:





 Hlustarstykkið og slangan eru losuð frá heyrnartækinu

 Hlustarstykkið er skolað með volgu vatn.








Hlustarstykkið og slangan eru lögð í skál með mildu sápuvatni.  Látið liggja í 5 - 10 mínútur, þannig að óhreinindi og eyrnarmergur leysist upp.  Notið ekki oddhvassa hluti við að hreinsa hlustarstykkið.






Þá er hlustarstykkið skolað undir rennandi vatni.





Þurrkið hlustarstykkið með mjúkum klút.  Best er að fjarlæga vatn með því að nota belg.  Oddinum á belgnum er stungið inn í slönguna og blásið þar til allir vatnsdropar eru horfnir.  Ef þa loftrás er á hlustarstykkinu þarf að einnig að blása í gegnum hana. Hlustarstykkinu með slöngunni er komið fyrir á heyrnartækinu aftur. Slangan sem tengir saman heyrnartækið og hlustarstykkið á alltaf að vera mjúk.  Ef slangan er hörð eða farin að gulna þarf að skipta um hana.

Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is