-

Það er álag að eiga að heyra eða vera fullviss um að manns eigin orð heyrist.
-
Komið ykkur því saman um að einhvern ákveðinn tíma dagsins skuli samtöl liggja niðri.
-
Munið að gefa heyrnarskertum hlustunarhlé.
-
Veljið samtalsaðstæður af kostgæfni. Sjáið til þess að þar ríki friður og ró.
-
Munið að heyrnarskertur einstaklingur hefur ekki alltaf sama úthald og þið til að hlusta og ræða málin í lengri tíma.
-
Munið að gefa hinum heyrnarskerta merki um að nú ætlið þið að segja eitthvað.
-
Sjáið til þess að þið náið augnsambandi - staðsetjið ykkur fyrir framan hann eða leggið varlega hönd á öxl honum til að gera vart við ykkur. Með því tryggið þið að hann meðtaki allt frá byrjun.
-
Komið ykkur saman um nákvæmar reglur um hvenær hinn heyrandi skal vera stuðningur í samskiptum og hvenær ekki, t.d. við aðstæður þar sem fleiri eru saman komnir. Munið að það er á allra ábyrgð að allir fái jafnmiklar upplýsingar.
-
Æfið ykkur í að tjá ástina án orða. Búið sameiginlega til orðlaus tákn eða merki sem tjá tilfinningar ykkar.
-
Munið að aðgreina venjuleg sambúðarvandamál frá vandamálum sem upp koma vegna heyrnarskerðingarinnar.
-
Ræðið sambúðarvandamálin við bestu aðstæður og þegar bæði hafa gott úthald til að hlusta!