Námskeið fyrir starfsfólk öldrunarstofnana eru haldin í samráði við stofnanir. Hægt er að fá námskeið sem er um klukkustundarlangt þar sem m.a. er farið yfir umhirðu heyrnartækja og annað sem viðkemur notkun þeirra. Starfsmaður Heyrnar- og talmeinastöðvar kemur þá í heimsókn á viðkomandi stofnun. Einnig er hægt að fá námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga varðandi heyrnarmælingar.