Heyrnar- og talmeinastöð Íslands
Beint í aðalvalmynd
Heyrn
Er heyrn barna í hættu?
29.09.2008
Er heyrn barna í hættu?
Lengi hefur verið þekkt að hávaði yfir ákveðnum mörkum skaðar mannlega heyrn. Víða á hávaðasömum vinnustöðum hafa verið gerðar fyrirbyggjandi aðgerðir til að vernda heyrn starfsfólks.
En heyrnin getur því miður skaðast af fleiru en hávaðasömum vinnustöðum.
Rannsóknir á undanförnum árum víða um heim sýna að heyrn barna og ungs fólks er skert af völdum hávaða.
Heyrn er mæld innan ákveðins tíðnisviðs sem spannar talað mál. Hávaði skaðar hærri tíðnir talsviðsins þar sem liggja óraddaðir samhljóðar eins og s,f,þ, b, d, og fleiri hljóð í íslensku. Þegar þessi hljóð heyrast ekki lengur verður niðurstaðan misheyrn og misskilningur með tilheyrandi afleiðingum. Í stað þess að heyra þessi hljóð með eyrunum þegar heyrnin er eðlileg þarf að "heyra" þau með augunum, lesa af vörum. Hæfileiki til að greina talað mál í klið minnkar.
Þessar heyrnarskemmdir hafa áhrif á nám og félagsleg samskipti.
Nýlegar rannsóknir frá Bandaríkjunum, Frakklandi og Ástralíu sýna allar fram á þá alvarlegu staðreynd að heyrn barna og ungmenna í þessum löndum hefur skaðast af hávaða. Í bandarísku rannsókninni kemur fram að 12,5% barna á aldrinum 6-19 ára eða 5,2 milljónir eru talin bera einhvers konar hávaðaskaða á heyrn á öðru eða báðum eyrum. Í 25% tilvika er skerðingin frá því að vera fremur væg upp í mjög alvarleg.
Í áströlsku og frönsku rannsókninni kemur fram m.a. að þeir sem nota heyrnartól við geislaspilara hafa frekar heyrnarskaða en aðrir. Sú bandaríska staðfestir ekki sérstaka orsakavalda en bendir á algengar skaðlegar hávaðauppsprettur í daglegu lífi nútímamannsins s.s. ferðageislaspilara, flugelda, blístrur og önnur leikföng, flugvélar og fleira. Tölvuleikir með miklum smellum og sprengingum eru einnig á listanum en hvell hljóð eru einhverjir mestu skaðvaldar fyrir heyrnarfrumurnar sem um getur. Á sama hátt hafa menn haft áhyggjur af diskótekum og rokktónleikum. Fleira mætti nefna s.s. leikfimisali heilsuræktarstöðva.
Ekki er ástæða til að ætla að lífsmynstur okkar Íslendinga sé ýkja frábrugðið því sem áðurtaldar þjóðir lifa við.
Framundan eru jól og áramót. Fáar þjóðir heims heilsa nýju ári með jafnmiklum tilþrifum og við en böggull fylgir skammrifi. Hávaðinn er það mikill og hvellirnir að full ástæða er til aðvörunar. Það var gott framtak þegar hlífðargleraugun voru sett í flugeldapakkana. Nú þarf að bæta um betur og hafa einnig sett af eyrnatöppum í hverjum pakka og fleiri til sölu á áberandi stað!
Einnig vil ég skora á foreldra að setjast með börnum sínum með tölvuleikina og geisladiskana sem koma upp úr pökkunum um jólin og ræða alvöru þess að spila of hátt eða of lengi. Því hærra sem spilað er því styttri tíma þarf til að heyrnin skaðist.
Hávaðaskaði á heyrn er óbætanlegt tjón!
Bryndís Guðmundsdóttir heyrnarfræðingur
Deildarstjóri barnastarfs
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands
Til baka
Heyrnarpróf
Heyrnarmælingar
Kuðungsígræðsla
Heyrnarskerðing
- Að byrja að nota heyrnartæki
- Samskipti - Góð ráð til hjóna
- Skólinn
- Námskeið og fræðsla
- Greinar
Eyrnasuð
Heyrnartæki - Leiðbeiningar
Tenglar
Þú ert hér:
Forsíða
Heyrn
Heyrnarskerðing
Greinar
Lesa
Leit og linkar
Prenta
Veftré |
Starfsmenn |
Minka letur
Stækka letur
Blár bakgrunnur
Aðalvalmynd
Forsíða
Um htí
Heyrn
Tal
Vörur
Þjónusta
Þátttaka ríkisins
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is