Heyrn

Forvarnir

29.09.2008

Heyrnarskaði vegna hávaða er algengari en fólk gerir sér grein fyrir. Eldri karlmenn eru margir með skerta heyrn af völdum hávaða, enda var vitneskja um skaðleg áhrif hávaða á heyrn minni fyrir nokkrum áratugum. Nú vitum við betur en samt vex hávaðinn í umhverfi okkar með hverju ári. Jafnvel börn eru í mun meiri hávaða daglega, til dæmis leikskólum, en hollt getur talist.

Eyra mannsins getur þolað allt að 85 dB jafngildis hávaða í 40 tíma á viku án þess að heyrnin skaðist. Hljóð upp á 140 dB getur hins vegar valdið heyrnarskaða samstundis! Á vinnustöðum þar sem hávaði fer yfir 85 dB á að nota heyrnarhlífar við vinnu og á flestum vinnustöðum er því fylgt fast eftir.

Á sama tíma og við erum orðin mun meðvitaðri um hávaða á vinnustöðum hefur hávaði í umhverfi okkar aukist. Meðal annars með aukinni eign á iPod og MP-3 spilurum. Hugsum um heyrnina og um það hvað getur gerst þegar við hlustum á tónlist á miklum styrk. Eitt skipti nægir til þess að skaða heyrnina varanlega. Heyrnartæki eru góð en þau koma aldrei í staðinn fyrir óskaddaða heyrn.





Til baka
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is