Heyrn

15.09.2009 Málstofa um hljóðvist
HLJÓÐVIST Í GRUNN- OG LEIKSKÓLUM
DAGSKRÁ

25. SEPTEMBER 2009 – HÁSKÓLI ÍSLANDS STAKKAHLÍÐ, BRATTA

Setning    Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra
Börn frá leikskólanum Klömbrum syngja nokkur lög með táknum
meira ->
12.03.2009 „Heyrnar- og talmeinastöð Íslands,“ grein birt í blaði Heyrnarhjálpar í nóvember 2007


Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, HTÍ, hefur verið starfrækt frá árinu 1979 og er til húsa að Háaleitisbraut 1. Frá árinu 1966 voru heyrnarmælingar gerðar á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. HTÍ er ætlað að þjóna heyrnarlausum, heyrnarskertum og þeim sem eru með heyrnar- og/eða talmein. Hlutverk hennar er m.a. að sjá um heyrnarmælingar og afgreiðslu heyrnartækja og annarra hjálpartækja, auk þess að veita fræðslu og þjálfun í notkun þeirra.








meira ->
29.09.2008 Forvarnir
Heyrnarskaði vegna hávaða er algengari en fólk gerir sér grein fyrir. Eldri karlmenn eru margir með skerta heyrn af völdum hávaða, enda var vitneskja um skaðleg áhrif hávaða á heyrn minni fyrir nokkrum áratugum. Nú vitum við betur en samt vex hávaðinn í umhverfi okkar með hverju ári. Jafnvel börn eru í mun meiri hávaða daglega, til dæmis leikskólum, en hollt getur talist.

meira ->
29.09.2008 Tölfræði
Áreiðanlegar tölur um heyrnarskerta Íslendinga liggja ekki fyrir en sé miðað við erlendar rannsóknir má gera ráð fyrir því að allt að 10% þjóðarinnar sé heyrnarskertur og af þeim um 5% það mikið heyrnarskertur að þeir hafi gagn af því að nota heyrnartæki. Með hækkandi lífaldri fjölgar í hópi heyrnarskertra þar sem heyrnarskerðingu flestra má rekja til öldrunar.

meira ->
29.09.2008 Er heyrn barna í hættu?
Er heyrn barna í hættu?
Lengi hefur verið þekkt að hávaði yfir ákveðnum mörkum skaðar mannlega heyrn. Víða á hávaðasömum vinnustöðum hafa verið gerðar fyrirbyggjandi aðgerðir til að vernda heyrn starfsfólks.

meira ->
26.09.2008 Heyrir barnið þitt?

Heyrn og málskilningur. Börn bregðast nokkuð misjafnlega við hljóðum, en í grófum dráttum mætti líta á eftirfarandi sem eðlilegar væntingar:
meira ->
26.09.2008 Heyrn, heilsa og hávaði
 
Evrópska vinnuverndar vikan er í ár tileinkuð hávaða á vinnustöðum.
Hávaði er hljóð sem einstaklingur óskar ekki eftir að heyra, þannig geta ljúfustu hljóð eins og falleg tónlist orðið hávaði ef þau verða of sterk. Hljóð fyrir einum getur verið hávaði fyrir öðrum.

meira ->
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is