Það getur tekið nokkurn tíma að venjast því að vera með heyrnartæki. Þess vegna skiptir miklu máli strax í upphafi að gera sér grein fyrir því að það er fyrirhöfn að byrja að nota heyrnartæki. Það krefst vinnu og þolinmæði, bæði fyrir þann sem notar tækin og ekki síður fyrir þá sem hann umgengst daglega. Þegar einstaklingur hefur fengið heyrnartæki fer hann að heyra aftur ýmis hljóð sem við viljum heyra en líka þau sem við oft og tíðum viljum ekki heyra. Það að heyra eigin rödd með heyrnartækjum eru mikil viðbrigði í fyrsta sinn. Það venst þó fljótt. Mikilvægt er að reyna markvisst að nota tækin allan daginn, við allar aðstæður.
Heyrnartæki nýtast best í samtölum við einstaklinga þar sem ekki er mikill annar hávaði. Þá geta tækin einnig nýst vel við að horfa á sjónvarp og hlusta á útvarp. Þegar þú færð heyrnartæki í fysta sinn er gott að láta vini og vandamenn vita að nú sért þú búin(n) að fá heyrnartæki og því þurfi ekki að hækka róminn þegar talað er til þín. Sjónin er mikilvægur stuðningur fyrir þá sem eru heyrnarskertir og því skiptir miklu máli að snúa andlitinu að fólki þegar talað er við það og þess gætt að birta sé góð. Æfingin skapar meistarann. Vertu því dugleg(ur) að nota tækin við mismunandi aðstæður. Farðu út að ganga og hlustaðu á hljóðin í náttúrunni. Æfðu þig í að lesa upphátt. Smátt og smátt finnurðu við hvaða aðstæður tækin hjálpa þér að heyra betur.