Heyrn

Heyrnarmæling

Heyrnarmæling fer fram í hljóðeinangruðu rými, heyrnarklefa. Heyrnartól, sem sett eru á höfuðið, eru notuð til að hlusta á hljóð. Heyrnarfræðingur situr við heyrnarmæli og sendir hljóð á mismunandi tíðni til eyrans. Með því að styðja á hnapp gefur þú til kynna þegar þú heyrir hljóð. Út frá svörun þinni er gerð mynd af því hvernig þú heyrir.  Myndin sýnir niðurstöðu heyrnarmælingar sjá mynd.

Lóðréttu tölurnar á ritinu tákna hljóðstyrkinn(dB). Tölurnar fyrir ofan ritið gefa til kynna tíðni áreitisins(Hz). Táknið O sýnir svörun við mismunandi tónum í hægra eyra en X svörun í vinstra eyra.

Þegar börn eru heyrnarmæld er annarsvegar gerð emissionmæling, sjá nýburamælingar, en þegar barnið hefur náð 6 mánaða aldri fer það að geta leitað eftir og staðsett hljóð. Þá er m.a. hægt að nota mælingu í hljóðrúmi þar sem hljóð eru gefin úr hátölurum og fylgst er með viðbrögðum barnsins. Hægt er að nota t.d ljós til að örva svörun barnsins þannig að þegar barnið heyrir og leitar eftir hljóðinu blikkar ljós.


Frá 3 1/2 - 4 ára ráða flest börn við tónmælingu með heyrnartólum. Svörun barnsins er þá gjarnan fengin í gegnum leik. Hægt er að nota kubba þannig að barnið setur kubb í kassa þegar það heyrir hljóð.

Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is