Flestir finna til eyrnasuðs án þess að taka það nærri sér. Yfirleitt er erfiðast að umbera eyrnasuðið þegar það gerir fyrst vart við sig. Smám saman læra menn að aðlagast suðinu en það getur tekið nokkra mánuði, jafnvel ár. Eyrnasuð getur hrjáð menn á ýmsa vegu og mætti nefna eftirfarandi:
Yfirleitt dregur smám saman úr þessum leiðinlegu fylgifiskum eyrnasuðs. Ef þú finnur ekki fyrir bata skaltu hafa samband við okkur. Ef við getum ekki hjálpað er hugsanlegt að við getum bent á einhvern annan sem getur orðið að liði.
Sum vandamál leysum við ekki hjálparlaust. Áhyggjur, þunglyndi og reiði eru ekki óalgengir fylgifiskar eyrnasuðs. Stundum þurfum við einfaldlega að fá tækifæri til þess að tala við einhvern sem þekkir vandamálið af reynslu. Ef þú ert illa haldinn skaltu leita hjálpar. Við kunnum ef til vill ekki að uppræta vandamálið, en hugsanlega getum við aðstoðað þig við að lifa með því.